skip to main |
skip to sidebar
Útrýmingarherferð
Ég sá að Vaka, félag hægrisinnaðra stúdenta, var að dreifa smokkum í Háskóla Íslands í gær. Ég hef auðvitað ekkert á móti því en eru þau ekki að skjóta sig svolítið í fótinn.Þurfa þau ekki einmitt að viðhalda stofni genetískra hægrimanna núna?
4 ummæli:
Blessaður Hörður, ég held þetta "dót" sé orðið svo úrkynjað að það sé frekar óttin við smit og sjúkdóma sem valdi þessari forsjárhyggju (eins ó-frjálshyggjulega sem það hljómar) Það vill nú líka svo skemmtilega til að tveir "aðal" gúrúarnir - DOddson og Hannes Hólmsteinn koma væntanlega ekki til með að láta liggja eftir sig langa genaslóð. :)
Er þetta lið bara ekki að ota sínum tota eins og venjulega?
ó þú ert bara frábær
Einu sinni var ort svona, raunar um foringja í öðrum stjórnmálaflokki, sem er heldur betur í sviðsljósinu nú um stundir:
Þó ýmsar hann til sín lokki,
leiðtoginn íklæddur smokki
- eru vandkvæði á
- það vísir menn sjá
að takist að fjölga í flokki.
og enn var ort:
Stendur hann við stokkinn,
Steingrímur með smokkinn.
Hann er að hugsa um flokkinn,
helvítis óþokkinn.
-g
Skrifa ummæli