Sem skólastjóra ber mér að tryggja að starfshættir leikskólans mótist af kristinni arfleifð íslenskrar menningar. Alveg síða í júlí 2008, þegar lög um leikskóla tóku gild, hef ég verið að velta því fyrir mér hvað þetta þýðir. Kannski skýrir þetta fjölskylduvídeó erfiða stöðu mína...
miðvikudagur, 29. janúar 2014
Kristileg arfleifð íslenskrar menningar
Sem skólastjóra ber mér að tryggja að starfshættir leikskólans mótist af kristinni arfleifð íslenskrar menningar. Alveg síða í júlí 2008, þegar lög um leikskóla tóku gild, hef ég verið að velta því fyrir mér hvað þetta þýðir. Kannski skýrir þetta fjölskylduvídeó erfiða stöðu mína...
þriðjudagur, 28. janúar 2014
Allir saman nú - afturí !
Nú líður að lokum átaksins Karlar í aftursætin. Þegar helstu prófkjör verða yfirstaðin um miðjan mánuðinn hættir átakið og árangurinn kemur í ljós. Þá sjáum við hvort karlar hafa einhversstaðar komist í forystusæti þrátt fyrir átakið og hvort þeir hafi ekki örugglega verið settir í aftursætið á grundvelli kyns.
Allir saman nú - í aftursætið!
föstudagur, 24. janúar 2014
Ný leið til stórsóknar
Nú er búið að fella kjarasamninga og þá þarf að velja nýja stefnu í sókninni. Ég held að við Martin Luther King séum alveg með réttu hugmyndina og tel víst að Neytendasamtökin styðji hana. Hér er fjölskylduvídeó sem skýrir málið...
þriðjudagur, 21. janúar 2014
Lýðræðisell
Gísli Baldvinsson veltir því fyrir sér í gær hvað er lýðræðislegt í ágætum pistli í tilefni af flótta ríkisstjórnarþingmanna frá þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB eins og lofað hafði verið.
Atburðir seinustu daga hafa leitt það glögglega í ljós
- að þjóðaskútan er lýðræðislek
- að stjórnarfleyið er lýðræðislekt
- og þjóðarsálin mun ekki geta af sér neitt betra því hana skortir lýðræðisleg
Eða þannig sko...
mánudagur, 20. janúar 2014
Þjóðarsáttarvísitalan
Ef menn halda að kjarasamningar um lága prósentuhækkun tryggi að ekki komi til verðhækkana, verðbólgu og vísitöluskriðs, af hverju vísitölutryggja menn þá ekki launin?
Ef menn eru öruggir um að lág prósenta í launaliðum kjarasamninga sé raunveruleg trygging, af hverju sýna þeir ekki trú sína í verki og verðlagstryggja laun?
Með verðlagstryggingu launa væri ábyrgð á verðbólguþróun færð til fjármagnseigenda, fjármálastofnana, atvinnufyrirtækja og stjórnvalda. Þessir aðilar sem öllu ráða hefðu ekki lengur hag af verðbólgu.
Ég væri til í að samþykkja kjarasamning með engri hækkun ef hann væri vísitölutryggður.
sunnudagur, 19. janúar 2014
Enn ein kona ráðin leikskólastjóri
Kona hefur verið verið ráðin skólastjóri að leikskólanum Hraunborg í Reykjavík.
Tíu umsækjendur voru um starfið en ekki er getið um kynjahlutfall í hópi umsækjenda í frétt á vef Reykjavíkurborgar þrátt fyrir markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna, að greina tölfræðiupplýsingar eftir kyni.
Ætti einhver að hafa áhyggjur af þessu? Jafnréttis eitthvað.
Það eru 286 leikskólar á Íslandi. Einn karlkyns leikskólakennri er skólastjóri. Hvað eru konurnar þá margar?
Eða eru allir hættir að reikna kynjahlutföll í mikilvægum starfsstéttum?
fimmtudagur, 16. janúar 2014
Handboltafjölskyldan
Hann bróðir minn og aðrir góðir menn hafa verið að benda mér á að nú sé handboltaveisla. Tengslin við handboltann eru missterk í fjölskyldum og sumir eiga meira erindi í veislu með honum en aðrir. Hér er eitt af fjölskylduvideóunum mínum...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
