laugardagur, 20. júní 2009

Ósæmilegt af landlækni



Landlæknir sendi frá sér merkilegt plagg þann 15. Júní síðastliðinn. Plaggið er ekki einungis merkilegt fyrir þær sakir að það er ekki til birtingar á heimasíðu landlæknisembættisins heldur á síðu þeirra sem lögleyfa vilja kanbisnotkun á Íslandi, kannabis.net.


Plaggið er merkilegt fyrir það að landlæknir klæðir umfjöllun sína í faglegan búning vitnar til fjölda fræðimanna og tilgreinir langan lista heimilda en um leið notar hann ritsmíð sína til að vega að kollega sínum, öðrum lækni, með ómaklegum og órökstuddum hætti.

Tilefni skrifa landlæknis er að Ólafur Skorrdal, kunnur baráttumaður fyrir lögleyfingu kanabisnotkunar, ritaði landlækni opið bréf í mars og gerði athugasemdir vegna frétta mbl.is af tölfræði og staðhæfingum SÁÁ.

Landlæknir hefur greinilega lagt á sig mikla vinnu við að setja saman svar til Ólafs, lesið margar rannsóknir og fræðirit sem hann grundvallar skoðanir sínar á og er það vel. Með þessu sýnir landlæknir að hann gerir ekki mannamun og allir eiga skilið faglega afgreiðslu hjá embættinu. Það er ekki langt síðna menn í stöðu Ólafs Skorrdal hefðu verið afgreiddir sem rugludallar eða dópistar. Sá tími er sem betur fer liðinn.

Vegna þess hve svar landlæknis er ítarlegt og rökstutt er líka alvarlegra þegar hann fer yfir strikið og vegur að forstöðulækni SÁÁ með órökstuddum dylgjum.

Í öðrum kafla ritsmíðar sinnar tekur landlæknir til umfjöllunar þá fullyrðingu Ólafs Skorrdals að “Yfirlýsingar yfirlæknis Vogs, Þórarins Tyrfingssonar, eru alls ekki studdar neinum vísindalegum rökum, heldur notar hann einungis tölfræði SÁÁ/Vogs, sem, hið minnsta, er lituð fjárhagshagsmunum hans sjálfs...”

Í svari sínu lætur landlæknir undir höfuð leggjast að geta þessa að þau vísindi sem læknisfræðin byggir almennt á notast við aðferðir megindlegrar aðferafræði og eru því ekkert nema tölfræði og góðir siðir, en umkvörtun Ólafs fjallar einmitt um að siðferði forstöðulæknis SÁÁ sé litað af fjárhagslegum hagsmunum hans og tölfræði hans sé ekki vísindi.

Í stað þess að lýsa því yfir að tölfræði SÁÁ sé hafin yfir vafa segir landlæknir að hann hafi ekki efast um hana og tekur að því búnu undir gagnrýni Ólafs um siðferði Þórarins Tyrfingssonar með aðferðum sem ekki eru sæmandi fagmanni, kollega eða embættismanni í stöðu landlæknis.

Landlæknir segir “Óvenjulegt er að formaður samtakanna er jafnframt yfirlæknir, sem setur hann í aðra aðstöðu en flesta aðra yfirlækna. Umræðan um SÁÁ er oft tengd fjárhagsvanda samtakanna og ekki óeðlilegt að yfirlæknirinn sem formaður samtakanna þurfi að beita sér í þeim efnum. Þetta samtvinnaða hlutverk hefur bæði kosti og galla. Þórarinn hefur mikla reynslu af meðferð fíkla og hefur unnið mikið og gott starf á því sviði. Reynsla hans vegur þungt, en stundum heyrist sú gagnrýni að óljóst hvort yfirlæknirinn er að reka áróður vegna fjárhagsvanda stofnunar sinnar eða hvort hann sé að koma upplýsingum um gagnreynda læknisfræði á framfæri.”

Með þessum málflutningi blandar landlæknir saman tveimur aðskildum málum, annarsvegar umræðu um fjármögnun sjúkrastarfsemi SÁÁ og hinsvegar framlagi samtakanna til vísindanna.

Það eru nýmæli í sjálfu sér ef landlækni finnst félög sem þurfa fjármagn til starfsemi sinnar verða með einhverjum hætti ótrúverðug og spyrja má í kjölfar þessara vangaveltna landlæknis hvort rétt sé að hafa fyrirvara á því sem Krabbameinsfélagið og Hjartavernd leggja til umræðu um krabbamein og hjartasjúkdóma svo nefnd séu dæmi um tvö félög sem stunda öflugar fjáraflanir til starfsemi sinnar.

Það sem er þó alvarlegt og hlýtur að vera ámælisvert er að þegar ummæli landlæknis eru lesin í samhengi við umkvörtunarefni Ólafs eru vísindastörf SÁÁ dregin í efa og það er gert með einkar ómálefnalegum hætti.

“...stundum heyrist sú gagnrýni að óljóst hvort yfirlæknirinn er að reka áróður vegna fjárhagsvanda stofnunar sinnar eða hvort hann sé að koma upplýsingum um gagnreynda læknisfræði á framfæri.”

Landlæknir tíundar ekki heimildir fyrir þessum ummælum sem hann hefur stundum heyrt. Ekki er ljóst hvort hann heyrði þessi ummæli stundum í heita pottinum í sundlaugunum eða á einhverjum viðmóta stað en víst er að ekki er hægt að finna nein ummæli í þessa veru með leitarvélum internetsins.

Landlæknir er yfirvald, sérfræðingur á sínu sviði og verður því að teljast traust heimild. Hvort sem fótur er fyrir því eða ekki að ofangreind gagnrýni hafi einhvern tíma átt sér stað eða stundum heyrst, er hún nú staðreynd - og hún er frá landlækni komin. Héðan í frá má efast um öll vísindastörf SÁÁ með þeim fyrirvara að landlæknir hafi haldið því fram (að aðrir hafi haldið því fram) að óljóst sé hvort stofnunin sé að upplýsa um læknisfræði eða stunda óróður.

Það er óþarfi að kynna Þórarinn Tyrfingsson fyrir landsmönnum. Í tæpan aldarfjórðung hefur honum verið trúað fyrir forystuhlutverki hjá SÁÁ og þeir sem til þekkja eru sannfærðir um að samtökin og sjúkrastofnanir þeirra væru ekki til í dag ef Þórarins hefði ekki notið við.

Vegna framsýni Þórarins og atorku hefur verið haldið utan um sjúklingabókhald SÁÁ með þeim hætti að nú er þar til gagnasafn sem er einstakt í sinni röð í heiminum. Þetta vita þeir vísindamenn sem gerst þekkja til vímuefnarannsókna í heiminum og eru áfjáðir í samstarf við Þórarinn Tyrfingsson og SÁÁ.

Tvö undanfarin ár hafa sendiboðar frá National institutes of health og Nida - National Institute on Drug Abuse í bandríkjunum komið gagngert til Íslands til að vinna að samstarfi með SÁÁ. Þessar stofnanir leggja til um 85% af öllu fjármagni sem rennur til vímuefnarannsókna í heiminum og þær starfa undir gríðarlega ströngum faglegum og siðferðilegum stöðlum.

Fyrir tæpu ári kom hingað Dr. Nora Volkow en tímaritið Time útnefndi hana nýlega eina af 100 áhrifamestu einstaklingum í heiminum. Nora sem er forstjóri Nida sagði í þessari heimsókn að íslenskir vísindamenn geti lagt mikið af mörkum í því augnamiði NIDA að bæta meðferðarúrræði vímuefnaneytenda og skilja betur hvernig og af hverju fólk ánetjast fíkniefnum. Hér á landi sé einstakt tækifæri til að fylgjast með hvaða áhrif meðferð hefur á fólk og einnig hefur hún hrifist af þeim gagnagrunnum sem Íslendingar búa yfir.

Þetta fólk treystir tölfræði Þórarins Tyrfingssonar og gögnum SÁÁ en íslenski landlæknirinn sér ástæðu til að hampa því að einhversstaðar hafi hann stundum heyrt að Þórarinn stundi áróður.




Edit 21.06.09 kl: 15:17
Ég hef fengið ábendingu um að eftir að ég leitaði að svari landlæknis á heimasíðu embættisins hefur efnið verið sett þar inn. Það má finna hér.

Ég bið einnig landlækni, Matthías Halldórsson, afsökunar á fyrirsögninni “Ósæmilegur landlæknir” það eru e.t.v. stór orð af einstöku tilefni. Ég hef leiðrétt fyrirsögnina.


12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þórarinn stundar áróður , þetta vita allir sem vilja vita á annað borð.
Allt reynt til að koma í veg fyrir umræðu.

Skorrdal sagði...

Smá leiðrétting, kæri Hörður. Vefsvæðið er http://kannabis.net, ef ég mætti koma því að.

Ólafur Skorrdal

Hörður Svavarsson sagði...

Úbbs takk, enninu sem vantaði hefur nú verið skotið inn í kannabisið.

Árni Guðmundsson sagði...

Blessaður Hörður - Fín skrif hjá þér - Var sjálfur alveg gapandi hissa að Landlækni - sjá www.arnigudmunds.net
kv Árni Guðmundsson

Árni Guðmundsson sagði...

Blessaður Hörður - Fín skrif hjá þér - Var sjálfur alveg gapandi hissa að Landlækni - sjá www.arnigudmunds.net
kv Árni Guðmundsson

Skorrdal sagði...

Takk kærlega - og þakkæti fyrir stuðninginn að mega hafa skoðun án ofsókna eða fordóma. Ég met þess mikils.

Ólafur Skorrdal

Unknown sagði...

Þórarinn notar sömu taktík og Bandaríkin notaði gegn marijuana í gamla daga. Honum finnst í lagi að ljúga og ýkja til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Sem er á vissan hátt skiljanlegt enda sér hann bara það allra versta; það sem kemur inn á Vog. En það er á engan hátt hlutlaust eða sanngjarnt sjónarmið. Ætti að heyra sögunni til.

Unknown sagði...

"Það eru nýmæli í sjálfu sér ef landlækni finnst félög sem þurfa fjármagn til starfsemi sinnar verða með einhverjum hætti ótrúverðug og spyrja má í kjölfar þessara vangaveltna landlæknis hvort rétt sé að hafa fyrirvara á því sem Krabbameinsfélagið og Hjartavernd leggja til umræðu um krabbamein og hjartasjúkdóma svo nefnd séu dæmi um tvö félög sem stunda öflugar fjáraflanir til starfsemi sinnar."
Krabbameinsfélagið og Hjartavernd leggja til málefnalega umræðu um krabbamein og hjartasjúkdóma en ef þú skoðar grein SÁÁ sem allt þetta mál er sprottið upp af, þá hefst hún svona:
"Í umræðu um kannabisneyslu og kannabisfíkn gleymist að geta þess að stór hluti kannabisneytendanna verður fíkin í önnur vímuefni og fer jafnvel að sprauta sig í æð með þeim." Þessi fullyrðing SÁÁ er röng, fordómafull og gerir starf SÁÁ frábrugðið starfi Krabbameinsfélagsins og Hjartanefndar. Það skiptir litlu máli hvar gripið er niður í verkum Þórarins, allstaðar kemur maður niður á svona vitleysu. Og á meðan svona lagað vellur upp úr yfirlækni SÁÁ, þá er trúverðugleiki stofnunarinnar gjörslamlega fyrir bí.

Unknown sagði...

Hörður, ég er forvitinn. Hvað finnst þér um það sem Páll segir varðandi fullyrðingar SÁÁ ?

nori@centrum.is sagði...

“Þessi fullyrðing SÁÁ er röng” segir Páll og á við fullyrðinguna “stór hluti kannabisneytendanna verður fíkin í önnur vímuefni”. Samt er hún rétt. Hvað finnst fólki um það? Vilja menn kannski fara að þrasa um hvað "stór hluti" er stór hluti?

gunnarjorgen sagði...

"Samt er hún rétt" segir nóri og á við setninguna “Þessi fullyrðing SÁÁ er röng”. Samt er fullyrðing nóra röng. Það er frekar fyndið.

http://en.wikipedia.org/wiki/Gateway_drug_theory

Unknown sagði...

ég held að það sé algjört rugl að “stór hluti kannabisneytendanna verður fíkin í önnur vímuefni”.. en ég er samt nokkuð viss um að stór hluti þeirra sem eru kannski orðnir háðir harðari efnum hafi notað kannabis. En þeir hafa líka næstum undantekningalaust notað áfengi og/eða tóbak.