fimmtudagur, 22. apríl 2010
Sandkassaleikur
Ég get ekki varist því að velta vöngum yfir þankagangi borgaryfirvalda sem rífa niður alla sandkassa í borginni en byggja golfvelli. Ætli þetta framtak sé liður í átakinu Borgarbörn - betri þjónusta við reykvísk börn sem kynnt er á forsíðu rvk.is ? ? ?
sunnudagur, 11. apríl 2010
Frasar til afnota
Ég hef á tilfinnigunni að á næstu dögum eigi ég ótrúlega oft eftir að heyra:
Það er mikilvægt að læra af þessu svo hægt sé að tryggja að þetta gerist ekki aftur.
Það er mjög mikilvægt að læra af þessu svo komið verði í veg fyrir að þetta endurtaki sig.
Það sem skiptir máli núna er að horfa fram á veginn og læra af þessu svo svona lagað gerist ekki aftur.
Nú þegar þetta er að baki getum við dregið af þessu mikilvægan lærdóm og búið svo um hnútana að ekki verði svigrúm til að viðmóta atburðir gerist aftur.
laugardagur, 10. apríl 2010
Raunsönn mynd
Ég fékk sendan link á lista frambjóðenda til hinna ýmsu embætta í nýju stéttarfélagi stjórnenda í leikskólum. Þar blasir við raunsönn mynd af stöðu jafnréttismála í íslenskum leikskólum árið 2010.
Í framboði eru 29 konur og 1 karl.
laugardagur, 23. janúar 2010
föstudagur, 22. janúar 2010
Hugmynd fyrir ríkisstjórn
Er það ekki ágæt hugmynd fyrir ríksstjórnina, ef henni líkar ekki niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave, að gera eins og gert verður í Hafnarfirði, og kjósa aftur og jafnvel aftur þar til þóknanleg niðurstaða fæst?
sunnudagur, 6. desember 2009
Tættir ostendar
Ég er að flytja bókskáp og kemur þá í ljós Sparibókin sem gefin var út af Landsbankanum 2003.
Þar er sparnaðarráð nr. 037:
Tættu niður ostenda og frystu. Notaðu þá síðan í gratín.
Takk fyrir þetta elsku Landsbanki, við eigum þér margar skuldir að gjalda.
laugardagur, 28. nóvember 2009
Köttum þetta af krökkunum
Ríkisstjórnin hefur fallið frá áformum sínum um að skerða greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Í staðinn verður foreldrum gert að geyma einn mánuð orlofsins þar til síðar. Síðar - hvað er það? Er það þegar kreppan er liðin hjá?
Semsagt - í stað þess að lækka greiðslur til foreldra eru foreldarnir teknir frá börnunum mánuði fyrr.
Sparnaður ríkisins verður sá sami – börnin blæða á línuna.
Eru ekki allir hagsmunahópar ánægðir með það?
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
