sunnudagur, 4. maí 2014

Pólitík fyrir venjulega...


Undanfarna mánuði hafa miðvikudagskvöldin mín farið í að hitta skemmtilegt fólk sem hefur áhuga á að leggja sitt af mörkum til að bæta samfélagið. Þetta er skemmtilegur hópur, góðar manneskjur, sem mér finnst óhætt að treysta. Við ákváðum að bjóða saman upp á Bjarta framtíð í Hafnarfirði.

Það þarf auðvitað mikið að spá og spekúlera þegar nýr hópur er myndaður um sameiginleg markmið og það þarf að skipuleggja allskonar. Það hefur verið skemmtilegt.

Í seinsustu viku var fyrsti stóri dagurinn í Bjartri framtíð Hafnarfjarðar. Við birtum lista okkar fyrstu tíu  manna, stolt með fallegri mynd , nöfnum og titlum. Það var gaman. Lækin hrúguðust inn og allir voru glaðir. Svo kom fyrsta kommentið:
"Það vekur athygli allir veifa umbúðum (titlum) og ekki sé ég titla eins og: Verkamaður, sjómaður, iðnaðarmaður og þessháttar."
Þetta er ágæt ábending, það er engin fiskverkakona á meðal fyrstu tíu. Þar er reyndar heldur enginn útlendingur, enginn með fötlun og jafnvel enginn samkynhneigður en það er þó ekki alveg víst.

Ég er leikskólastjóri og hef í frítíma mínum gegnt formannshlutverki í félaginu Íslensk ættleiðing í fimm ár. Ég held að þessi hlutverk gefi einhverja mynd af mér. Ég er ekki fiskverkakona, það er alveg rétt og það dregur líka upp ákveðna mynd af mér. Gott að myndin skýrist, það er gaman og auðveldar valið úr offramboðinu sem verður á kjördag.

Ég get skýrt myndina meira. Ég hef unnið við færiband í plastpokaverksmiðju, staðið þar á tólf tíma vöktum. Ég hef verið byggingaverkamaður og horft á félaga minn verða að öryrkja þegar fimm hæða vinnupallurinn hrundi undan honum.

Ég var aðstoðarmaður í leikskóla þegar ég var tvítugur og formlegt stöðuheiti mitt var starfsstúlka. Ég vann í eldhúsi á sumarhóteli þegar ég var ungur en fór fyrst að taka að mér launuð störf í hljómplötuútgáfu pabba míns þegar ég var fimm ára.

Seinna gaf ég sjálfur út tímarit í þrettán ár. Ég hef oftast unnið, en einn vetur las ég bara allan Þórberg Þórðarson og megnið af Laxnesi og öll sex dagblöðin sem komu út daglega.

Ég vann við að hjálpa fólki úr klóm áfengisfíknar í sjö ár og ég starfaði sem pípulagningamaður í eitt ár um aldamótin. Það var erfitt starf en gott. Gott að fá skilning á ferðum vatnsins og því sem ferðast með því. Ég þurfti að skipta um klósett hjá veikum manni. Það var óhreint og eiginlega ógeðslegt og þeir sem til þekkja átta sig á að það er nánast ógjörningur að skipta um klósett án þess að leggjast á fjórar fætur. Það felst í því ákveðin auðmýkt að krjúpa fyrir framan skítugt klósett.

Ég hef þá auðmýkt með mér þegar ég býðst til að vinna fyrir samborgara mína að Bjartri framtíð. En ég er ekki fiskverkakona, þó ég sé að öðru leiti frekar venjulegur. Og ég trúi því að nú séu runnir upp þeir tímar að pólitík sé fyrir okkur venjulega fólkið.




fimmtudagur, 20. mars 2014

Ræðum aðeins um þetta

Einn mesti áhættuþáttur í rekstri sveitarfélaga eru samningar við ríkið. Sveitarfélög hafa ekki farið vel út úr þeim viðskiptum þó undirbúningur hafi stundum staðið árum saman.

Rekstur sveitarfélaga á grunnskólum varð ekki til að bæta skólakerfið og hefur reynst mörgum þungur. Yfirtaka sveitarfélaga á málefnum fatlaðra hefur heldur ekki orðið til að létta rekstur eða koma á tímamótaúrbótum í þessum málaflokki.

Áhættan er mikil

Áhætta sveitarfélaga felst í því að samið er við ríkið um fjármagn á grundvelli þjónustu sem verið er að veita þegar samningar eru gerðir en að afloknum samningum hefur ríkið allt vald og öll tækifæri, með setningu laga og reglugerða,  til að gera kröfur til hins nýja rekstraraðila um nýja eða aukna þjónustu.

Til að jafna mismunandi útgjaldaþörf sveitarfélaga sem ekki er fyrirséð þegar sveitarfélög taka yfir málaflokka sem heyrt hafa undir ríkið sækja sveitarfélög í jöfnunarsjóð sveitarfélaga, en þau greiða líka í sjóðinn hlutfall af útsvarstekjum sínum.

Viðskipti Hafnarfjarðarbæjar við jöfnunarsjóðinn hafa ekki verið bænum hagstæð ef litið er til undanfarinna ára. Það mætti jafnvel halda því fram að í gegn um jöfnunarsjóðinn, sem er afar ógagnsætt fyrirbæri, hafi Hafnarfjörður styrkt skólastarf í nágrannasveitarfélögum eins og t.d. Garðabæ á undanförnum árum.

Með ofangreint í huga vekur það töluverða undrun að heyra í sjónvarpsfréttum á mánudagskvöldið að þrjú sveitarfélög á höfuðbrorgarsvæðinu hafi áhuga á að taka við rekstri framhaldsskóla og að Hafnarfjarðarbær sé eitt þeirra.

Förum varlega

Það er gott að hafa metnað og gott að hafa trú á að maður geti sjálfur gert það betur sem öðrum hefur ekki tekist nógu vel. Flensborgarskóli í Hafnarfirði er ein af stofnunum ríkisins sem hefur verið í hvað mestum rekstrarvanda undanfarin ár og ítrekað hafa fjárveitingar ekki dugað fyrir rekstrarkostnaði.


Það er því ljóst að meintur áhugi Hafnarfjarðar á að reka skólann er ekki til að maka krókinn á umframfjármagni sem bíður í stöflum í Flensborg.

Hafnarfjarðarbær sætir eftirliti Eftirlitsnefndar sveitarfélaga og skuldar 225% árstekna sinna og því er mikilvægt að fara varlega. Sveitarfélagið er hins vegar að ná tökum á rekstrinum og það eru mjög jákvæðar fréttir og því er mikilvægt að taka ekki óþarfa áhættu núna.


Ég hlakka því til þegar þeir sem stjórna Hafnarfjarðarbæ opna umræðuna um áhuga sinn á yfirtöku á verkefnum ríkisins og gera grein fyrir því hvernig þeir sjá fyrir sér ávinning af slíkri yfirtöku og hvernig eigi að forðast áhættu, sem við höfum brent okkur á áður. Það er mikilvægt að gefa bæjarbúum tækifæri til að láta skoðanir sínar í ljós um svona stór og mikilvæg mál. Tölum saman.



sunnudagur, 2. febrúar 2014

Einn á hjóli


Það var í sjálfu sér virðingarverð tilraun hjá Eyþóri Arnalds, í Sunnudagsmorgni Gísla Marteins,  að reyna að endurvinna brottfall almennings frá Sjálfstæðisflokknum með því að halda því fram að þeir væru víst umhverfisverndarsinnar af því Theodore Roosevelt stofnaði þjóðgarð seint á nítjándu öld og af því Gísli Marteinn hjólar.

Þeim sem fannst þetta ekki bara fyndið fóru samt líklega að hlægja korteri síðar þegar Unnur Brá formaður Allsherjarnefndar Alþingis kom í þáttinn. Hún mætti greinilega ekki á hjóli.




miðvikudagur, 29. janúar 2014

Kristileg arfleifð íslenskrar menningar


Sem skólastjóra ber mér að tryggja að starfshættir leikskólans mótist af kristinni arfleifð íslenskrar menningar. Alveg síða í júlí 2008, þegar lög um leikskóla tóku gild, hef ég verið að velta því fyrir mér hvað þetta þýðir. Kannski skýrir þetta fjölskylduvídeó erfiða stöðu mína...


þriðjudagur, 28. janúar 2014

Allir saman nú - afturí !


Nú líður að lokum átaksins Karlar í aftursætin. Þegar helstu prófkjör verða yfirstaðin um miðjan mánuðinn hættir átakið og árangurinn kemur í ljós. Þá sjáum við hvort karlar hafa einhversstaðar komist í forystusæti þrátt fyrir átakið og hvort þeir hafi ekki örugglega verið settir í aftursætið á grundvelli kyns.

Allir saman nú - í aftursætið!




föstudagur, 24. janúar 2014

Ný leið til stórsóknar


Nú er búið að fella kjarasamninga og þá þarf að velja nýja stefnu í sókninni. Ég held að við Martin Luther King séum alveg með réttu hugmyndina og tel víst að Neytendasamtökin styðji hana. Hér er fjölskylduvídeó sem skýrir málið...




þriðjudagur, 21. janúar 2014

Lýðræðisell


Gísli Baldvinsson veltir því fyrir sér í gær hvað er lýðræðislegt í ágætum pistli í tilefni af flótta ríkisstjórnarþingmanna frá þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB eins og lofað hafði verið.

Atburðir seinustu daga hafa leitt það glögglega í ljós
  • að þjóðaskútan er lýðræðislek
  • að stjórnarfleyið er lýðræðislekt
  • og þjóðarsálin mun ekki geta af sér neitt betra því hana skortir lýðræðisleg

Eða þannig sko...