miðvikudagur, 25. febrúar 2009

Þó ég vilji Davíð burt...



Ég vil Davíð burt, ég þrái nokkra góða daga án Davíðs. Það er tilfinningamál fyrir mig, ég er kannski svona klikkaður bara en ég vil að stjórnmálamaðurinn sem var potturinn og pannan í að móta grundvöll fyrir því ástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar hætti að vera með puttana í því sem hugsanlega hefur áhrif á líf mitt.


Ég vil að hann fari hvort sem hann er sekur um eitthvað og hvort sem skoðanakannanir eru gerðar af Baugsmiðlum eða stofnunum kolkrabbans. Þetta er löngun mín og ég þarf ekki að færa nein rök fyrir henni. Lýðræðið er þannig að ég má hafa þessa löngun, tala um hana og básúna eins og ég vil.

En þó ég vilji þetta djúpt og innilega, vil ég ekki að subbulegum meðölum sé beitt og lýðræðið sé vanvirt við að koma Davíð frá.

Ég hef áhyggjur eins og Baldurmcqueen.com um Seðlabankafumvarpið. Sumsé um að hugmyndir sem uppi eru hjá meirihlutanum um að forsætisráðherra skipi fjóra af fimm nefndarmönnum í nýja peningastefnunefnd Seðlabankans, veiti forsætisráðherra mjög mikil völd.

Ég hef líka áhyggjur og get meir að segja tekið undir með Gísla Marteini: Um viðbrögð þeirra sem vildu fyrir skömmu auka vægi Alþingis við hiki Höskuldar. Öllum að óvörum vilja sumir nú að „alræði ráðherranna“ eigi að gilda og þingmenn eigi ekki að hafa aukið vægi, og þaðan af síður að fylgja sannfæringu sinni.

Svo finnst mér það ekki passa að ágætur ráðherra hafi þetta í flimtingum á fésbókinni sinni og beri saman þjóðfélag án þröskulda og Alþingi án Höskulda.


Kreppublogg



Ég fékk ekki svartar ólívur í Fjarðarkaupum. Búðarkonan sagði að þetta væri rétt að byrja. Sumar vörur koma ekkert aftur sagði hún og fólk á mjög erfitt með að sætta sig við þetta.


Í Súfistanum er ekki hægt að kaupa kaffibaunir lengur. Ekki neina tegund. Við eigum bara eitthvað smá sem við verðum að nota sjálf sagði afgreiðslustúlkan. Það er eitthvað erfitt með innflutning sagði hún.

Í Bónus kostuðu rakvélarblöðin mín 3490 krónur, átta stikki í pakka. Rakvélablað á 436 krónur!

Tómatbökuáti (með ólívum) og kaffidrykkju er sjálfhætt hér með. Ég hætti fljótlega að raka mig líka.

þriðjudagur, 24. febrúar 2009

Leikari vill afklæðast úti



Er einhver orðinn leiður á pólitískri umræðu sem er alveg eins og pólitísk umræða sem verið hefur í gangi seinustu áratugi? Fjórflokkurinn kýtir innbyrðis. Hver stingur hvern og hver er verri en hver, er rosalega þreytt umræða. Ætluðum við ekki að breyta einhverju?

Ég var þess vegna mjög glaður að lesa um leikarann sem getur ekki á heilum sér tekið vegna þess að í sumar kemst hann ekki til að fækka fötum utandyra í Suðurbæjarlauginni í Hafnarfirði.

Þessi fyrrverandi bæjarstjóri í Latabæ nennir ekki í önnur sveitarfélög til að afklæðast í útiklefum meðan sundlaugin verður lokuð vegna viðhalds.

Magnús Ólafsson stórleikari vill að laun bæjarstarfsmanna verði lækkuð svo hann megi fækka fötum utandyra í sumar eins og alltaf áður. Magnúsi er sjálfsagt ekki kunnugt um að nú þegar er búið að skera niður laun allra bæjarstarfsmanna og honum er sjálfsagt ekki kunnugt um að viðgerðir á sundlauginni verða að fara fram að sumri þegar veðurfar er skaplegt. Þrátt fyrir það er ég þakklátur Magnúsi fyrir þennan ýkta barlóm í Fréttablaðinu í dag.

Magnúsi er sérleg lagið að skemmta fólki og hann ætti endilega að taka þátt í prófkjöri flokksins sína aftur, við þurfum menn eins og Magnús sem láta engan bilbug á sér finna þrátt fyrir alheimskreppu og gleyma ekki lúxusmálum á borð við þörfina fyrir að afklæðast undir berum himni.

laugardagur, 21. febrúar 2009

Um Ara bara



Það gladdi mig að sjá að Ari Matthíasson ætlar að gefa kost á sér í prófkjöri VG í Reykjavík. Við Ari unnum saman í nokkru ár og ég veit að hann er með sterka réttlætiskennd, hann er duglegur, vel menntaður og fylginn sér.


Ég vona að VG veiti Ara góða kosningu. Hann mun verða öflugur talsmaður almannahagsmuna.

Sjálfur hef ég ekki ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri sem hlýtur að teljast mjög merkilegt af því bloggið mitt er á Eyjunni, þar sem er ofboð af þingmannsefnum.

miðvikudagur, 18. febrúar 2009

Tvennt



===========

Nýr lipurlega skrifandi bloggari kom til liðs við Eyjuna í dag. Honum til sóma má segja að hann dregur enga dul á að hann birtist á þessum vettvangi í tilefni af framboði sínu í prófkjöri Sjálfstæðismanna.

Þetta er Þórlindur Kjartansson. Þórlindur segir að hann ætli að skrifa um hvaðeina sem veki áhuga hans því honum finnst skemmtilegast að lesa blogg þar sem fjallað er á frjálslegan og hispurslausan hátt um sem fjölbreyttasta þætti samfélagsins. Þrátt fyrir það gengur Þórlindur í smiðju til Björns Bjarnasonar og Gísla Marteins og hefur ekki opið fyrir komment í bloggi sínu.

============

Er Björn Jörundur hættur í dópi? Hvað táknar hún nákvæmlega yfirlýsingin um að þessi frétt eigi ekki við í dag? Ekki alveg nógu afdráttarlaust fyrir minn smekk hjá þessum skarpa orðsnillingi.


Af greindum skynjarakerfum



Þetta er fræðasvið hans Kalla nágranna míns: Stafræn og ljósræn mynstursgreining, myndvinnsla, flokkun og rakning. Ljósræn tölvuhögun og algrým, hönnun stafrænna kerfa og greind skynjarakerfi.


Í dag fékk hópur undir stjórn Kalla, sem heitir reyndar Karl Sölvi Guðmundsson, nýsköpunarverðlaun forseta Íslands. Verkefnið þeirra, gönguhermir fyrir fötluð börn, er eitt af því sem gæti komið Íslandi á lappirnar á ný.

Til hamingju Kalli og co.

þriðjudagur, 17. febrúar 2009

Tökum fram pottana



Það var tvennt sem skipti miklu máli að nýja rikisstjórninn afgreiddi með sóma. Raunverulegan stuðning við heimilin í landinu og stjórnlagaþing.


Undanfarna daga hefur verið að koma í ljós að ekkert á að gera af viti fyrir fjölskyldur sem sem sjá húseignir sínar fuðra upp í verðbólgurugli. Lengja í lánum... Greiða í hlutum út miljón af séreignasparnaði... Búið. Tuttugu miljóna íbúðalán hækkar um hálfa miljón á mánuði.

Nú kemur þessi frétt: "Ólíklegt að frumvarp um stjórnlagaþing nái fram að ganga fyrir kosningar"

Það er kominn tími til að taka fram góðan pott og sterka sleif. Hvað eigum við að öskra?