skip to main |
skip to sidebar
Mér finnst svolítið viðlíka stemming núna og 1984 í stóra BSRB verkfallinu. Þá var upplausnarástand. Við Austurvöll var haldinn baráttufundur og þessi mynd var tekin úr turni Hótel Borgar af útsendara Valhallar.
Myndin varð fræg og daginn eftir var fluttur þessi kveðskapur á baráttufundi opinberra starfsmanna í Austurbæjarbíói.Við dómkirkjuhornið er dulítið skjólog dolfallinn maður í skjólinu hjarirmeð opið í hálsinn í októbersól,uppglennta skjáina og titrandi varir,hrollandi í bitru á helfrosnum tám,hnýttur af kulda með rennsli úr nefi,dofinn í krikum og dofinn í hnjám,djúpt oní vösum er krókloppinn hnefi.Það gustar um Hannes H. Gissurarsoná gægjum við hornið að snapa eftir fréttum.Í svip hans er spurning og veikburða vonum Valhallarsigur á Béserrbé-stéttum.Hann leynist í skugga, hann vokir, hann veitþað er vissast að taka ekki áhættu neinasvo fjarri öllum vinum í frjálshyggjusveit,þeim Friedman og Hayek og Davíð og Steina.Úr bókviti malar hans krambúðarkvörní kapítalistanna gullpyngjur digrar,en gott er að hafa af guðshúsi vörnef gerast þau ósköp að jafnréttið sigrar.En Hannes minn Hólmsteinn þótt kenning sé klármun Kristur ei taka neitt mark á þeim orðum,og uppi þú verður jafn einmana og smárog eitt sinn á dómkirkjuhorninu forðum.Aftur er október, þó liðin séu 24 ár. Í þessu verkfalli breyttist heimsmynd okkar nokkurra ungmenna og óhætt að segja að trúin á félagshyggjuna, samstöðuna og verkalýðsbaráttuna hafi yfirgefið okkur mörg.Þegar eldri dóttir mín, sem þá var þriggja ára sá þessa mynd varð henni að orði;“Er hann búinn að kúka á sig?” Ég held að núna megi segja að kúkurinn sé kominn.
Þessi frétt er ekki merkileg vegna ekkifréttarinnar sem hún fjallar um, en það er gaman að fá mynd af fólkinu í flokksráðinu.
Ég hef verið þeirrar skoðunar að rétt sé að ölduganginn lægi áður en seðlabankastjóra sé skipt út. Þessi skaðvaldur með bensínslönguna við stórbálið gerir það þó ekki endasleppt.Í fréttablaðinu í dag segir:“Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í Kastljósþætti, að erlendir kröfuhafar fengju ekki nema "þetta fimm, tíu, fimmtán prósent upp í sínar kröfur."Heimildir innan stjórnvalda herma að ummæli Davíðs hafi valdið titringi hjá Bretum.”Og í kjölfarið komst Kaupþing þrot. Um það er sagt á Mbl.Kaupþingsmenn eru sannfærðir um að Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, hafi í máli sínu í gærmorgun verið að vísa til orða Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra í Kastljósi Sjónvarpsins í fyrrakvöld, þegar hann greindi frá því að Íslendingar ætluðu ekki að borga. „They are not going to pay!“ sagði ráðherrann. Telja þeir að þessi túlkun fjármálaráðherrans á orðum seðlabankastjóra, með skírskotun til tryggingagreiðslna vegna Icesave-innlánsreikninganna, hafi riðið baggamuninn og allt traust erlendra lánardrottna hafi beinlínis gufað upp á augabragði.Vonbrigði forsvarsmanna Kaupþings eru gífurleg. „Við vorum ekki í vanskilum, vorum með nægt laust fé og góða eignastöðu. En fyrirtækið var tekið af okkur með valdi í Bretlandi og við gátum ekkert gert,“Nú er ekki hægt að réttlæta það lengur að bíða með að víkja Davíð burt!
Össur Skarphéðinsson sem m.a. hefur unnið sér það til frægðar oftar en einusinni að gerast skemmtikraftur eftir miðnætti og blogga af miklu hispursleysi svo vægt sé að orði komist er staðgengill formanns Samfylkingarinnar í forföllum formannsins.Það er ögurstund og mikilvægar ákvarðanir teknar.
Samfylkingin er lýðræðislegur flokkur og vill vera það. Varaformaður flokksins er kosinn af flokksfélögum.
Núverandi varaformaður er hámenntaður og einmitt í þeim fræðum sem að gagni koma í krísunni núna. Hann er ekki í ríkisstjórn en hefur verið valinn af flokksfélögum, ekki bara einusinnu, heldur tvisvar.Hver skipaði Össur í hlutverkið? Afhverju var hann settur í verkefnið en ekki varaformaðurinn eða bankamálaráðherrann, háttvirtur viðskiptaráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála?
Mín litla fjölskylda skuldbreytti óhagstæðu húsnæðisláni árið 2004. Svigrúmið sem við það fékkst var notað til að lagfæra þakið á húsinu okkar, við staðgreiddum þá viðgerð.Við höfum ekki fengið okkur jeppa á erlendu láni, ekki fellihýsi og seinast þegar ég fór í utanlandsferð var það á vegum vinnustaðar míns árið 2006.Allir þeir bílar sem ég hef keypt um ævina hafa kostað vel innan við milljón og þeir hafa aldrei verið fjármagnaðir með erlendu láni.Mér hefur fundist menn í fjármálageiranum fara offari undanfarin ár og stjórnast af heimskulegri græðgi. Ég hef hlustað á viðvaranir við ofurvexti bankakerfisins og litlum gjaldeyrisforða. Ég hef fylgst með því hvernig krónubréf hafa stjórnað genginu og séð viðvaranir við því að einhverntíma komi að því að krónubréfin verði innleyst.Ég hef eins og fjölmargir aðrir, meirihluti þjóðarinnar reyndar, kallað eftir evru því ég eins og aðrir er í þrælahaldi krónunnar.Ég hef sé ráðamenn skella skollaeyrum við viðvörunum og hundsa með bjánalegum rökum ákall um evru.Mér finnst þessvegna óþolandi núna þegar menn á borð við Pétur Blöndal og Geir Haarde koma og hald því fram að við séum öll samábyrg og ástæðan sé að svo margir fengu sér jeppa. Það er óþolandi.
Þættinum hefur borist bréf:"Ríkisstjórnin er gagnslítil í besta falli og Samfylkingingarráðherrar eru djúpt sokknir í að kóa með XD, Davíð og öllu rugli síðustu ára. Björgvin kokgleypti Glitnisleikþáttinn og er búinn að gefa Davíð alibí fyrir öllu. Eina manneskjan sem æmtir er Þorgerður Katrín.Það er tímabært að Samfylkingin krefjist þess að lögum um Seðlabanka verði breytt, Davíð verði látinn fara og stefnt verði að umsókn um ESB aðild. Solla hlýtur að fara með þingrofsréttinn með Geir."Ég er sammála þessu.
,,Þegar uppstreymið hættir er fall þeirra sem hæst fljúga mest,"
sagði Geir og bætti við að ekki bæri að örvænta þrátt fyrir þann stórsjó
sem þjóðarskútan siglir nú í gegnum.
Innihaldslausir frasar?