skip to main |
skip to sidebar
Styttum leikskólakennara
Menntamálaráðherra er augljóslega í ruglinu ef hann heldur að hægt sé að fjölga leikskólakennurum með því að stytta nám þeirra. Ef það væri raunhæft gætum við bætt úr læknaskorti á Landspítala á örfáum árum með sama hætti.
En ég er með lausnina.
Ég
vil að leikskólakennarar verði styttir. Eitthundrað og fimmtíu
sentímetrar ætti að vera algjört hámark fyrir leikskólakennara. Þannig
færast þeir nær börnunum og álag á þá í starfi verður minna. Það mætti
jafnvel hugsa sér að greiða þeim laun í samræmi við hæð eða öllu heldur
læð. Stytting leikskólakennara mun breyta samfélaginu !
3 ummæli:
Snilld...
læð?
Einmitt. Orðið læð er í anda alvörunnar í þessum pistli... Trufli það einhvern að orðið sé ekki til má spyrja hvort sá hinn sami ætli að stytta leikskólakennara.
HS
Skrifa ummæli