Á seinasta fundi Fræðslunefndar Hafnarfjarðar
fyrir sumarfrí var ráðinn skólastjóri við leikskólann Hörðuvelli. Umsækjendur
voru fimm, fjórar konur og einn karl, sem öll uppfylltu formlegar
kröfur til starfans.
Sviðsstjóri Fræðslusviðs Hafnarfjarðar
lýsti því yfir að honum þætti ein konan hæfust og Fræðsluráð gerði ekki
athugasemdir við það mat. Það varð því úr að ráða konu í starfið. Leikskólar Hafnarfjarðar eru nú 17 talsins.
Enginn karl er leikskólastjóri í Hafnarfirði, 17 konur gegna slíku starfi.
Jafnréttishalli
Í jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar kemur fram að jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við önnur sjónarmið þegar ráðið er í stöður hjá Hafnarfjarðarbæ. Umsækjandi af því kyni sem er í minni hluta í viðkomandi starfsgrein skal að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningu þegar hann er jafn hæfur eða hæfari. Það hafa því væntanlega verið mjög þung og veigamikil rök sem sviðsstjóri Fræðslusviðs lagði fram þegar hann mat eina konuna hæfasta til að gegna leikskólastjórastarfinu á Hörðuvöllum úr því Fræðsluráð gerði ekki athugasemd við matið.

Það eru
um 260 leikskólar á Íslandi. Einn karlkyns leikskólakennari er í
leikskólastjórahlutverki, allir hinir leikskólastjórarnir eru konur ef frá eru
skildir nokkrir litlir skólar sem yfirteknir hafa verið af grunnskólum. Þetta
eru sláandi tölur um jafnréttishalla og ekki að ástæðulausu að því hefur verið
haldið fram að um leikskólana séu nokkurskonar glerveggir þar sem karlar komast
ekki að.
Glötuð tækifæri
Við það að ráða enn eina konuna í stöðu leikskólastjóra glataði Hafnarfjarðarbær tækifæri til að standa við jafnréttisáætlun bæjarins. Við glötuðum tækifærinu til að fjölga karlkyns leikskólastjórum um 100% á Íslandi og bærinn missti af tækifæri til að vera eina sveitarfélagið á Íslandi með karlkyns leikskólastjóra í sinni þjónustu.

Það er
mikilvægt að jafnréttið virki ekki bara í eina átt. Þess vegna er mjög
mikilvægt að gögn og rök sviðsstjórans sem lágu að baki því að veita enn einni
konu leikskólastjórastöðu séu mjög veigamikil og kannski hefði Fræðsluráð þrátt
fyrir allt átt að gera athugasemd við þetta mat sviðsstjórans.
Greinin birtist fyrst í Fjarðarpóstinum í dag 24. október 2013 á 38 ára afmæli Kvennafrídagsins.
2 ummæli:
Já, það hallar víða á karlmenn og jafnréttið er farið að snúast upp í andhverfu sína.
Ísland er víst það land þar sem best er að vera kona.
En ég held að Ísland sé hins vegar eitt af þeim löndum í heiminum þar sem er einna verst að vera karlmaður.
Konum er nefnilega hampað mjög mikið hér á landi, en ekki karlmönnum.
Það er svo mikið af kvenna þetta og kvenna hitt hér á landi, allskonar kvennablöð og félög kvenna um hitt og þetta.
Og enn í dag er verið að ráða konu í stjórnarstarf.
Kona er skipuð framkvæmdistjór LÍN af öllum hæfum umsækjendum. Hvað annað.
Að meðaltali daglega er kona skipuð eða ráðinn í einhverskonar stjórnunar- eða framkvæmdastjórastöðu einhvers staðar hér í samfélaginu.
Á hinn bóginn er karlmaður skipaður að jafnaði einu sinni í viku í einhverja stjórnunarstöðu.
Er þetta jafnrétti?!??
Skrifa ummæli