miðvikudagur, 26. maí 2010

Að fella björk fyrir Reyni


Í dag var fundað um eignaupptöku án sakfellingar í Háskóla Íslands og Helgi Hjörvar hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að mögulegt verði að gera eignir grunaðra glæpamanna upptækar áður en til sakfellingar kemur.


Það er merkilegt að eignaréttur manna sem grunaðir eru um glæpi skuli kyrfilega varinn með lögum jafnvel þó sterkur grunur standi til að eignirnar sé illa fengnar og með ólögmætum hætti en á sama tíma ganga húskarlar pólitíkusa um bæi og þorp og svipta eigum af fólki með vísan í hæpnar heilbrigðisreglur.


Við sem búum úti á landi í þorpum og bæjum á borð við Garðabæ og Hafnarfjörð höfum oft tök á því að vera í nánari samvinnu við pólitíkusuna á svæðinu heldur en þeir geta sem búa í höfuðstaðnum. Hér er bréf sem ég ritaði bæjarstjóranum mínu á föstudag:


Sæll félagi Lúðvík.

Hann Reynir Kristjánsson hjá Framkvæmdasvið Hafnarfjarðar er duglegur starfsmaður og fer um með límmiða frá Heilbrigðiseftirlitinu sem hann setur á eigur bæjarbúa ef þær eru í bílastæðum í eigu bæjarins. Reynir límdi svona miða á fólksbílakerruna mína sem er númerslaus vegna þess að hún er ekki nema 148 cm og fæst ekki skráð.

Með vísan í 5. grein samþykkta sveitarfélagsins Hafnarfjarðar um þrifnað utanhúss lofar Reynir að gera kerruna mína upptæka og til þess hefur hann fulla heimild samkvæmt áðurnefndum samþykktum. En auk þess hefur Reynir sagt mér að honum finnist svona kerrur vera ljótar og það sé sanngjarnt að taka gagnlegar eigur einstaklinga í bænum af þeim, þó fráleitt sé að ætla að af þeim stafi hætta eða mengun. Reynir hefur því ekki eingöngu lög og rétt sín megin heldur er hann drifinn áfram af persónulegum ástæðum og réttlætiskennd. Það verður seint ofmetið hvað það er mikils virði fyrir bæjarfélagið að búa að mannauði í starfmönnum sem fylgja reglum út í ystu æsar, eru fullir eldmóðs og kunna betur en borgararnir að ákveða hverjir hagsmunir íbúanna eru.

Af kerrunni okkar höfum við hjónin haft margvíslegt gagn undanfarin 10 ár. Það er af því hagræði að geta ekið því sem til fellur í garðinum í endurvinnslustöð í stað þess kaupa sendibíl fyrir mikið fé eða láta úrgang safnast upp með tilheyrandi mengunarhættu. Við viljum því mikið til vinna að geta haft afnot af kerrunni okkar og vegna þess að Reynir er sá sem valdið hefur, úthlutaði hann okkur af sanngirni viku til viðbótar svo gera megi ráðstafanir. En ráðstafanir verður að gera vegna þess að húsið okkar er sextíu ára og stendur á lóð þar sem engin er innkeyrslan. Frestinn munum við því nota til að taka niður girðingu og fella fimmtíu ára gamalt birkitré og þrjátíu ára gamla hnarreista ösp. Þannig getum við búið til stæði fyrir kerruna sem er norðan við gangstéttina og inni á lóðinni okkar, í tveggja metra fjarlægð frá bílastæðinu sem hún nú stendur í.

Þó sárt sé að sjá á eftir trjánum, sem eru til prýði í hverfinu göngum við í þessar framkvæmdir með gleði í hjarta því valdheimildir bæjarstarfsmanna til að fjarlægja eigur okkar verður að virða. Vitandi það að betra verður að búa í Hafnarfirði eftir að við höfum flutt kerruna um tvo metra leggjum við þetta á okkur og ég sendi þér svo myndasyrpu af verkefninu þegar því er lokið.



4 ummæli:

Haukur sagði...

Blessaður vertu settu kerruna bara upp á gangstétt, þá sér Reynir hana ekki. Hér í Setberginu komast margir upp með að geyma kerrunar sínar (og bíla) mánuðum saman uppi á gangstétt.

StashDiva sagði...

Getur þú ekki bara útbúið trapissu og hent hana upp í tré :P

Nafnlaus sagði...

Það er bara bannað að vera með svona kerrur úti á götu sem er ætluð sem bílastæði.
PS, og hvenær ætlar þú að fara að koma þessum opel úr stæðinu okkar hérna á planinu ?

betan sagði...

Og hva? Fékkstu svar vid thessu gullfallega bréfi?